Fylgiskjöl
Fylgiskjal 1
Borgarnesi 16.apríl 2012
Ágæti skólastjórnandi!
Við undirritaðar erum að vinna að lokaverkefni við Háskólann á Bifröst í Sterkari stjórnsýslu. Verkefnið felur í sér að koma á menntaþingi í Borgarbyggð í haust.
Upphaflega var hugmyndin okkar að skipuleggja menntaþing í héraði að vori 2013, en eftir að hafa kynnt verkefnið fyrir sveitarstjóra og fræðslunefnd vorum við hvattar til að láta þessa hugmynd verða að veruleika og halda það í haust.
Til þess að svo geti orðið er mikilvægt að allir skólarnir í Borgarbyggð komi að þinginu og kynni sína stofnun, starf og stefnu ásamt áhugaverðum verkefnum. Þingið verður opið fyrir alla sem áhuga hafa bæði innan og utan sveitar. Stýrihópur, með fulltrúa frá hverjum skóla, mun hafa veg og vanda af skipulagningu þingsins. (Við undirritaðar munum vera fulltrúar í stýrihópnum fyrir okkar skóla).
Markmið þingsins er að kynna Borgarbyggð sem sterkt skólasamfélag þar sem lögð er áhersla á miðlun þekkingar á milli skólastofnanna. Gildin um góð samskipti og virðingu verða höfð að leiðarljósi.
Fyrirkomulag þingsins er þannig hugsað að hver skóli hafi ákveðið rými/bás þar sem hægt er að vera með kynningu á völdu efni auk þess að hafa atriði eða fyrirlestur í um það bil 10-12 mínútur.
Í sveitarfélaginu eru starfræktar 12 skólastofnanir: 5 leikskólar, 2 grunnskólar, tónlistarskóli, menntaskóli, 2 háskólar og dansskóli. Ekki geta öll sveitarfélög státað af svo mörgum skólastigum, en við teljum þetta vera einn af styrkleikum okkar héraðs sem við eigum að halda á lofti og vera stolt af.
Hér með biðjum við þig fyrir hönd þíns skóla að taka þátt í þessu verkefni með okkur.
Okkur þætti vænt um að þú myndir senda okkur hugmynd af því sem þinn skóli vill kynna á þinginu fyrir 27.apríl n.k. auk þess að tilnefna fulltrúa í stýrihópinn.
Með vinsemd og virðingu,
Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, Grunnskóla Borgarfjarðar
Kristín Gísladóttir, Leikskólanum Uglukletti
Steinunn Baldursdóttir, Leikskólanum Klettaborg
Theodóra Þorsteinsdóttir, Tónlistarskóla Borgarfjarðar
Fylgiskjal 2
Borgarnesi, 19.apríl 2012
Viðtakandi:
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra.
Erindi: Beiðni um þátttöku ráðherra í menntaþingi.
Áætlað er að halda menntaþing í Borgarbyggð fyrsta laugardag í nóvember 2012. Menntaþing- Sýn og samvinna er verkefni undirritaðra sem hafa verið í námi í Háskólanum á Bifröst í „Sterkari stjórnsýslu“. Lokaverkefni okkar felst í því að vinna raunhæft verkefni í heimahéraði. Við völdum þetta verkefni með það að markmiði að varpa ljósi á og kynna hversu sterkt og fjölbreytt skólasamfélag er í Borgarbyggð og væri áhersla lögð á miðlun þekkingar á milli skólastofnanna.
Eftir að hafa kynnt verkefnið fyrir sveitarstjóra og fræðslunefnd vorum við hvattar til að láta þessa hugmynd verða að veruleika og halda þingið í haust.
Í sveitarfélaginu eru starfræktar 12 skólastofnanir: 5 leikskólar, 2 grunnskólar, tónlistarskóli, menntaskóli, 2 háskólar og dansskóli. Ekki geta öll sveitarfélög státað af svo mörgum skólastigum, en við teljum þetta vera einn af styrkleikum okkar héraðs sem við eigum að halda á lofti og vera stolt af. Við höfum þegar leitað til allra skólanna og fengið mjög góð viðbrögð.
Það væri okkur mikill heiður að fá menntamálaráðherra til að opna þingið með ávarpi og njóta þingsins með okkur.
Fyrirspurn um styrk. Er möguleiki á að sækja um styrk til menntamálaráðuneytisins til að mæta kostnaði við auglýsingar, kynningar og aðra vinnu við þingið?
Svar sendist Ingibjörgu Ingu Guðmundsdóttur, Grunnskóla Borgarfjarðar, Varmalandi , 311 Borgarnes [email protected]

_______________________________________________

_________________________________________________